Einstaklingsfyrirtæki (firma)
Ábyrgð: Einstaklingsfyrirtæki er fyrirtæki sem einn aðili á og rekur á eigin kennitölu. Ábyrgð eigandans á skuldbindingum rekstursins er bein og ótakmörkuð.
Skráning: Skrá þarf einstaklingsrekstur í fyrirtækjaskrá Ríkisskattstjóra og skal það gert hjá sýslumanni í því umdæmi þar sem skrifstofa rekstrarins er.