Kvennaráðgjöfin

  • flower
  • flower2
  • flower3

Ég er að verða 18 ára og er ekki með búsetuleyfi. Verð ég ekki að hætta í skólanum og fara að vinna til að sýna framfærslu?

Nei, þú mátt halda áfram í skólanum. Þú þarft hins vegar að vera í fullu námi og sýna eðlilega námsframvindu. Það þýðir að þú ljúkir alla vega 75% námsefnis á hverri önn/hverjum vetri. Ef þú býrð hjá foreldrum þínum þá nægir yfirlýsing frá þeim um framfærslu. Þú getur jafnframt fengið leyfi sem veitir þér rétt til að vinna með skólanum.
Forsíða Spurt og svarað Búsetu og atvinnuleyfi Ég er að verða 18 ára og er ekki með búsetuleyfi. Verð ég ekki að hætta í skólanum og fara að vinna til að sýna framfærslu?