Kvennaráðgjöfin

  • flower
  • flower2
  • flower3

Ég er með c-leyfi, get ég fengið því framlengt? Fæ ég þá leyfi sem skapar grundvöll fyrir búsetuleyfi?

Dvalarleyfi og búsetuleyfi sem veitt hafa verið fyrir gildistöku laganna halda gildi sínu. Þeir sem fengið hafa útgefið dvalarleyfi vegna atvinnuþátttöku án takmarkana fyrir gildistöku laganna geta óskað endurnýjunar á leyfum sínum þrátt fyrir að skilyrðið um skort á vinnuafli sé ekki uppfyllt enda fullnægi þeir öðrum skilyrðum fyrir endurnýjun slíks leyfis.  Handhafi slíks leyfis getur sótt um búsetuleyfi og aðstandendur hans geta sótt um dvalarleyfi. Þeir sem hafa dvalarleyfi með takmörkunum, t.d. c-leyfi, geta sótt um framlengingu á leyfinu, en þá þarf skilyrðið um skort á vinnuafli að vera uppfyllt og veitt yrði tímabundið dvalarleyfi vegna skorts á vinnuafli, sem getur ekki verið grundvöllur fyrir ótímabundnu atvinnuleyfi og búsetuleyfi.
Forsíða Spurt og svarað Búsetu og atvinnuleyfi Ég er með c-leyfi, get ég fengið því framlengt? Fæ ég þá leyfi sem skapar grundvöll fyrir búsetuleyfi?